
|
|
|
Nokkur góð ráð í aðdraganda brúðkaupsveislu Það er margt sem hafa þarf í huga við undirbúning á góðri veislu og brúðkaupsveislan ykkar á að vera sérstaklega eftirminnileg, er það ekki? Víða er hægt að fá fagmenn og góð ráð við hinum ýmsu atriðum og það ber að nýta, þannig getið þið verið rólegri í undirbúningnum og hugað meira að ykkur sjálfum. Sumir vilja vissulega gera allt sjálfir, þá eru ýmis ráð líka fáanleg á netinu, en munið þó að það er búið að finna upp hjólið! Veislan Sjálf veislan er eitt af því fyrsta sem þarf að huga að. Veislusalir eru margir bókaðir með árs fyrirvara og ef halda á veisluna í sal er gott að byrja þar. Þá er ekki vitlaust að huga að veisluþjónustu í leiðinni, sumir salir eru reknir af veisluþjónustum en aðrir salir eru fáanlegir án kvaða um veitingar. Sumir velja brúðkaupsdaginn fyrst og leita síðan að sal, aðrir kanna hvenær þeirra óskasalur er laus og ákveða daginn eftir því. Að sjálfsögðu þarf svo að bóka prestinn og óskakirkjuna ykkar sama dag :) Ef halda á veisluna í heimahúsi er ekki þörf á jafn löngum fyrirvara, þá er hægt að bóka veisluþjónustur með mun skemmri fyrirvara. Engu að síður þarf í tæka tíð að huga að borðum, stólum, dúkum, borðbúnaði, borðskrauti o.fl. Hvort sem veislan er í sal eða heima, nýtið ykkur alla ráðgjöf sem þið getið fengið frá veitingamanni og hafið það hugfast að veislan snýst ekki bara um góðan mat heldur alla framsetningu, heildarsvip og þjónustu. Það að gera gott brúðkaup frábært er í höndum þjónustufólks sem lætur gestina líða vel frá fordrykk og fram á nótt. Ýmiss undirbúningur Þá eruð það þið sjálf og gestirnir. Eruð þið búin að velja hringana? Boðskortið er gott að senda út með tveggja til þriggja mánaða fyrirvara, jafnvel fyrr ef brúðkaupið er á háannatíma sumarfría. Boðskort sem fara of snemma út geta þó týnst og er því betra að halda sig við 2-3 mánuði en láta ykkar nánustu vita fyrr svo þau bóki ekki flugið út í heim á röngum tíma. Eins og fram kemur í Pistli annars staðar á þessum síðum þá er það mikilvægasta atriði alls undirbúnings að hringja út í alla, Alla! sem ekki hafa tilkynnt sig. Blómin skipta miklu máli, blóm í kirkjuna, brúðarvöndur, í hnappagatið hjá brúðguma og svaramanni og hugsanlega á heimilið eða í salinn. Annað borðskraut þarf að huga að en forðist allt smáskraut og glimmer. Svo er það glæsibifreiðin og borði og blóm á hann og auðvitað ísfata og kampavín í aftursætið! Ekki gleyma myndatökunni. Flestir láta bíða eftir sér á milli kirkju og veislu, mæta um klukkustund á eftir gestum en ef athöfnin er mjög seint má líka fara fyrst í myndatöku. Þá er bara að finna flottu fötin, panta hárgreiðslu, handsnyrtingu, bóka hótelherbergi eða utanlandsferð og búa sig undir að hlakka til. Tossalisti veislunnar Hér er svo nokkuð tæmandi listi yfir það sem ekki má gleymast, tala ekki um ef þið ætlið að gera allt sjálf í sal eða heima. Fatahengi og herðatré, gjafaborð, gestabók, fallegur penni og borð, fordrykkjarborð, fordrykkur og glös. Diskar og hnífapör fyrir hvern rétt, vínglös fyrir hvítt og rautt, cognacsglös, vatnsglös og könnur undir vatn og gos og viðeigandi drykkir. Kertastjakar, kerti og servíettur fyrir aðalrétt og eftirrétt. Klaki og bali fyrir bjór, kaupið 33cl glerflöskur, það er minnsta rýrnunin og þið þurfið ekki glös. Dósir eru iðulega skildar hálfar eftir hér og þar. Tónlist, veislustjóri og því ekki góð vefsíða með myndum af ykkur og salnum svo allir rati, matseðil, óskalista o.fl. Góður matur, gott starfsfólk... ...og gott veður!
|
|
Leitið tilboða í brúðkaupsveislu
Upplýsingar um brúðkaupsveislu
Pantanir og fyrirspurnir um lausar dagsetningar, matseðla og verð eru aðeins veittar í tölvupósti, nánari upplýsingar eru veittar í síma
Samstarfsaðilar
© 2009, Cocktail veisluþjónusta |